Sómalíski dómarinn Omar Artan, sem átti að dæma á HM en var meinað um inngöngu í Bandaríkin, mun dæma úrslitaleik evrópska Ofurbikarsins.
UEFA tilkynnti um tíðindin fyrir skömmu en PSG og Aston villa mætast í úrslitaleiknum og fer hann fram 12. ágúst í Salzburg.
UEFA tilkynnti um tíðindin fyrir skömmu en PSG og Aston villa mætast í úrslitaleiknum og fer hann fram 12. ágúst í Salzburg.
Aleksander Ceferin, forseti UEFA, segir Artan hafa sannað sig á stærsta sviði í Afríku og vill sýna honum þá virðingu sem hann á skilið.
„Fótbolti snýst um að sameina fólk og UEFA vill sýna Omar virðingu,“ var m.a. haft eftir Ceferin í tilkynningu UEFA.
Artan var fagnað sem hetju í Sómalíu þegar hann sneri heim á miðvikudag eftir að hafa verið sendur úr Bandaríkjunum.


