Al-Ittihad lagði Damac að velli í efstu deild í Sádi-Arabíu í dag og skoraði Houssem Aouar fyrsta mark leiksins eftir undirbúning frá Moussa Diaby.
Damac jafnaði metin í síðari hálfleik og hélst staðan jöfn allt þar til í uppbótartíma þegar Saleh Al-Shehri lagði upp sigurmark leiksins fyrir Abdulaziz Al-Bishi á 94. mínútu.
Lokatölur urðu því 2-1 og er Al-Ittihad í harðri baráttu um síðasta lausa sætið í umspili fyrir Meistaradeildina þegar þrjár umferðir eru eftir af deildartímabilinu. Fabinho er fyrirliði Al-Ittihad og voru Steven Bergwjin, Youssef En-Nesyri og Danilo Pereira einnig í byrjunarliðinu.
Al-Riyadh lagði þá Al-Fateh að velli og er í harðri fallbaráttu við Damac á lokametrum tímabilsins.
Al-Ittihad 2 - 1 Damac
1-0 Houssem Aouar ('24)
1-1 Yakou Meite ('73)
2-1 Abdulaziz Al-Bishi ('94)
Al-Riyadh 1 - 0 Al-Fateh
1-0 Mamadou Sylla ('47)



