Raheem Sterling hefur fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir frammistöður sínar með hollenska liðinu Feyenoord undanfarin misseri.
Sterling gekk til liðs við hollenska liðið á frjálsri sölu í febrúar eftir að hafa rift samningi sínum við Chelsea eftir að hafa verið í kuldanum hjá Lundúnaliðinu.
Hollenskir fjölmiðlar segja Sterling ekki hafa staðið undir væntingum en hann hefur komið að einu marki í fimm leikjum. Liðið er í 2. sæti Eredevise, fimmtán stigum á eftir toppliði PSV.

Sterling var í byrjunarliði Feyenoord í stórleik gegn Ajax í gærdag. Hann var tekinn af velli á 55. mínútu þegar Feyenoord var 1-0 undir, en eftir skiptinguna tókst Feyenoord að jafna metin. Fjölmiðlar fóru hörðum höndum um Sterling eftir leik.
DPG Media: „Í nútíma fótbolta þýðir enginn hraði engin hætta. Koma Sterling vakti vonir meðal stuðningsmanna en sá enski getur ekki gert gæfumuninn fyrir Feyenoord.“
AD: „Spennan var áþreifanleg og sást það einnig inni á vellinum, meðal annars í klaufalegri tilraun Raheem Sterling þegar hann sparkaði boltanum hátt yfir markið.“
De Telegraaf: „Algjört klúður“.
Athugasemdir