mán 17. maí 2004 00:00
Elvar Geir Magnússon
Allt um lokaumferðina á Ítalíu
Þetta var sautjándi meistaratitill AC Milan.
Þetta var sautjándi meistaratitill AC Milan.
Mynd: Elvar Geir Magnússon
Ancona, Modena og Empoli fylgja Ancona niður í B-deildina á Ítalíu en það varð ljóst í gær þegar lokaumferðin var leikin. Þá sigraði Inter sinn leik og endaði því í fjórða sæti sem gefur sæti í Meistaradeildinni næstu leiktíð. Þar með urðu vonir Parma um það sæti að engu en liðið vann samt góðan sigur þar sem Alberto Gilardino skoraði fjögur mörk!

Perugia á enn von um að halda sæti sínu í deildinni en liðið leikur aukaleiki um það gegn liðinu sem endar í sjötta sæti í Seríu-B. Hér að neðan getið þið lesið um leikina sem fram fóru í lokaumferð Seríu-A í gær.

Smellið hér til að skoða lokastöðuna í deildinni


Chievo - Bologna 2-1
Bæði þessi lið sigldu lygnan sjó um miðja deild og þessi leikur því ekki mjög þýðingarmikill. Gestirnir tóku forystuna eftir 11 mínútna leik en þá skoraði Fabio Pecchia mjög gott mark. Chievo var hættulegt í föstum leikatriðum og jafnaði með skallamarki Amauri á 18.mínútu. Þessi brasilíski leikmaður lagði síðan upp mark á 22.mínútu fyrir Andrea Zanchetta í skyndisókn. Chievo var síðan betri aðilinn og var liðið nær því að bæta við en Bologna að jafna. Franco Semioli hélt að hann hefði komið Chievo í 3-1 og fagnaði eins og óður maður en gat ekki annað en brosað þegar hann uppgötvaði að hann var einn að fagna því markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Empoli - Inter 2-3
Empoli tapaði fyrir Inter á Stadio Castellani en leikurinn var mjög þýðingarmikill fyrir bæði lið. Empoli er nú fallið í Seríu-B eftir þessi úrslit en Inter endaði í fjórða sæti sem þýðir að liðið spilar í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Christian Vieri var í banni og Fabio Cannavaro meiddur en Adriano var í stuði og það skipti máli. Stefano Lucchini skoraði fyrsta mark leiksins á 18.mínútu og Empoli tók óvænt forystuna. Markið var einfalt og kom eftir aukaspyrnu frá Ighli Vannucchi. Eftir þetta fékk Inter fjölda marktækifæra en heppnin virtist ekki vera með þeim í liði. Alveg undir lok leiksins kom loks jöfnunarmarkið en það skoraði Adriano með skalla.

Í seinni hálfleik stjórnaði Inter leiknum en skyndisóknir heimamanna voru hættulegar. Á 64.mínútu skoraði Alvaro Recoba úr aukaspyrnu fyrir Inter en hann kom inn sem varamaður í hálfleik. En maður leiksins var svo sannarleg Adriano sem skoraði sitt annað mark stuttu seinna. Þessi brasilíski sóknarmaður lék á fjóra leikmenn Empoli og skoraði svo stórglæsilegt mark sem hann á að öllu leyti! Fimm mínútum fyrir leikslok minnaði Tommaso Rocchi muninn en það mark skilaði litlu því Empoli féll.

Lazio - Modena 2-1
Roberto Mancini og lærisveinar í Lazio enduðu tímabilið á sigri en þó án þess að fá sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Bernardo Corradi átti stórleik í bikarúrslitunum þar sem Lazio vann og hann var einnig á skotskónum í gær. Hann skoraði fyrsta mark leiksins á 16.mínútu. Cesar hefur verið mikið meiddur á þessari leiktíð en var stöðug ógn í leiknum í gær. Snemma í seinni hálfleik bætti hann við marki fyrir Lazio en fyrr í leiknum hafði hann skallað í þverslána. Nicola Amoruso monnkaði muninn fyrir Modena úr vítaspyrnu en lengra komst liðið ekki og er Modena því fallið niður í Seríu-B.

Lecce - Reggina 2-1
Þessi leikur skipti litlu máli því bæði lið höfðu að engu að keppa. Javier Ernesto Chevanton skoraði fyrsta mark leiksins sem var jafnframt hans þrítugasta fyrir Lecce í efstu deild. Enginn annar leikmaður liðsins hefur skorað jafnmikið í deildinni. Axel Konan gat bætt við öðru marki en hann skallaði í þverslá. Stefano Dall'Acqua potaði inn jöfnunarmarki á 31.mínútu eftir hornspyrnu. Daniele Franceschini átti frábæran leik og hann skoraði sigurmark Lecce í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik var Chevanton tekinn af leikvelli og stuðningsmönnum gefinn kostur á að klappa fyrir þessum frábæra leikmanni sem er að öllum líkindum á leiðinni burt frá félaginu.

Milan - Brescia 4-2
Það var hátíðleg stund á San Siro þegar AC Milan fagnaði meistaratitlinum með 4-2 sigri á Brescia. Þá var þetta einnig síðasti leikur Roberto Baggio í Seríu-A. Þar með kvaddi hann ítalska boltann eftir 20 ára veru þar, 205 mörk og 452 leiki. Milan var tveimur mörkum yfir í hálfleik eftir mörk Jon Dahl Tomasson og Andriy Shevchenko. Þegar sjö mínútur voru liðnar af seinni hálfleik minnkaði Brescia muninn með marki Francelino Matuzalem. Hinn brasilíski Kaka var maður leiksins og hann lagði þriðja mark Milan upp fyrir Tomasson sem skoraði því tvö mörk í leiknum. Eftir klukkutíma leik var hinn danski síðan tekinn af leikvelli og inn kom Manuel Rui Costa sem var ekki lengi að skora. Baggio lagði síðan upp síðasta mark leiksins sem Matuzalem skoraði og úrslitin 4-2.

Parma - Udinese 4-3
Parma vann Udinese 4-3 í stórkostlegum knattspyrnuleik. Þrátt fyrir þennan sigur náði Parma ekki fjórða sætinu og spilar því ekki í Meistaradeildinni næstu leiktíð. Nafn dagsins var Alberto Gilardino en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði öll fjögur mörk Parma í leiknum! Hann hefur því skorað 23 mörk á leiktíðinni. Nokkuð athyglisvert er að staðan í þessum leik var 0-0 í hálfleik en seinni hálfleikurinn var algjör flugeldasýning og sjö mörk litu dagsins ljós. Á 55.mínútu kom fyrsta markið en það skoraði Per Kroldrup fyrir Udinese en eftir það fylgdu tvö mörk frá Gilardino. Það var Martin Jorgensen sem jafnaði með skalla í 2-2 en eftir það fylgdu síðan önnur tvö mörk frá Gilardino áður en Marek Jankulovski minnkaði muninn í 4-3 í uppbótartíma sem urðu lokatölur leiksins.

Perugia - Ancona 1-0
Hið skrautlega lið Perugia á enn von um að spila meðal þeirra bestu áfram á næstu leiktíð. Sigur á föllnu liði Ancona gerði það að verkum að Perugia endaði í fjórða neðsta sætinu og fær því aukaleiki gegn liðinu sem endar í 6.sæti í Seríu-B um hvort liðið verður í Seríu-A næstu leiktíð. Jay Bothroyd kom inn í liðið í þessum leik vegna meiðsla og reyndist verða hetjan með því að skora eina markið á 63.mínútu. Ancona var nálægt því að jafna en ekki tókst það og Perugia sigraði.

Sampdoria - Roma 0-0
Hvorugt liðið hafði að einhverju að keppa í þessum leik og það sýndi sig. Það voru ekki mörg marktækifæri í þessum leik en Roma komst næst því að skora þegar U21 landsliðsmaðurinn Gaetano D'Agostino skaut í tréverkið. Þá var þetta líklega seinasti leikur Walter Samuel, Emerson og John Carew fyrir Roma.

Siena - Juventus 1-3
Það var kveðjustund hjá Marcello Lippi þjálfara Juventus sem stýrði liðinu í síðasta sinn í gær. Hann kvaddi með sigri á Siena á útivelli. Varnarmaðurinn Igor Tudor skoraði fyrsta mark leiksins eftir hálftíma en sú forysta entist ekki lengi því Tore Andre Flo jafnaði sjö mínútum síðar. En Juventus var sterkari aðilinn, Fabrizio Miccoli og Marco Di Vaio bættu ið mörkum og Juventus vann 3-1 á Stadio Franchi.
Slapp
banner
banner