fim 22. júlí 2004 06:39
Hafliði Breiðfjörð
Heinze ekki með Man Utd í upphafi tímabils
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Argentínumaðurinn Gabriel Heinze mun ekki leika með Manchester United í upphafi næstu leiktíðar þar sem hann verður með Argentínu á Ólympíuleikunum. Hann er því annar leikmaður félagsins sem missir af upphafi móts af þessari ástæðu en Cristiano Ronaldo hefur verið valinn í hóp Portúgal. Báðir munu þeir því missa af fjórum leikjum í deildinni auk leiks í undankeppni Meistaradeildarinnar. Heinze verður einn þriggja leikmanna sem mega vera eldri en 23 ára í hópi Argentínumanna, hinir verða Roberto Ayala leikmaður Valencia og Kily Gonzalez leikmaður Inter Milan.
Slapp
banner