United menn ekki sáttir við Ólympíuleikana
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United segir að Cristiano Ronaldo og Gabriel Heinze ættu ekki að spila fyrir lið sín á Ólympíuleikunum. Eins og við höfum greint frá voru þeir báðir valdir í lið sín sem leikur á Ólympíuleikunum í ágúst og missa því af fyrstu fjórum deildarleikjum liðsins auk leikja í undankeppni Meistaradeildar Evrópu.
,,Við yrðum að gefa Ronaldo tveggja mánaða frí þegar hann kemur aftur svo við myndum ekki geta notað hann fyrr en í nóvember. Þetta er fáránlegt." sagði Ferguson. ,,Við erum að reyna að fá því til að skilja þetta því við erum vonsviknir. Ég held meira að segja að þeir hafi ekki það mikinn áhuga eftir að hafa spilað á EM 2004 og Copa America."
David Gill framkvæmdastjóri félagsins sagði: ,,Við keyptum Heinze frá 1. júlí og munum ekki sjá hann fyrr en í september ef hann spilar í Aþenu. Við greiðum laun hans í tvo mánuði, hann verður mikilvægur hluti liðsins svo maður verður að spyrja hvort þetta sé sanngjarnt, það getur ekki verið."



