Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 08. maí 2019 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu tilþrif Ögmundar Kristinssonar á tímabilinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ögmundur Kristinsson gerði fína hluti með AEL Larissa í gríska boltanum á nýliðnu tímabili.

Larissa endaði í neðri hluta deildarinnar, með 34 stig í 30 leikjum. Liðið skoraði aðeins 26 mörk á tímabilinu en sem betur fer var Ögmundur öflugur í búrinu til að jafna þetta út. Hann lék alla deildarleikina á tímabilinu og fékk 34 mörk á sig.

Það er ekki mikið hægt að horfa á gríska boltann hér á landi en búið er að setja saman myndband fyrir þá sem vilja sjá markvörslur Ögmundar á tímabilinu.

Myndbandið fylgir hér fyrir neðan og sýnir frá helstu tilþrifum hans í gríska boltanum í vetur.


Athugasemdir
banner
banner
banner