Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 02. júní 2026 22:01
Ívan Guðjón Baldursson
Dumfries fer til Real Madrid
Mynd: EPA
Real Madrid hefur verið í leit að nýjum hægri bakverði til að fylla í skarðið fyrir fyrirliðann Dani Carvajal sem er farinn eftir þrettán ár með stórveldinu.

Real hefur verið orðað sterklega við Pedro Porro og Denzel Dumfries síðustu daga og er svo gott sem búið að ganga frá félagaskiptum fyrir þann síðarnefnda.

Dumfries er á leið til félagsins úr röðum Ítalíumeistara Inter fyrir svo lítið sem 20 milljónir evra, eða því sem nemur riftunarákvæðinu hans. Fabrizio Romano segir það vera 20 milljónir og hefur skellt „here we go!" stimplinum fræga á félagaskiptin.

Dumfries er 30 ára gamall og hefur verið meðal bestu bakvarða ítölsku deildarinnar síðustu ár. Hann á 71 landsleik að baki fyrir Holland og er í landsliðshópnum sem fer á HM.

Núverandi samningur hans við Inter rennur út eftir tvö ár og er ljóst að Ítalíumeistararnir þurfa nú að hefja leit að verðugum arftaka.

   01.06.2026 22:05
Verður Pedro Porro í samkeppni við Alexander-Arnold?

Slapp
banner