Á vefsíðunni bestadeildin.netlify.app er tekin saman tölfræði um Bestu deildir karla og kvenna . Þar er hægt að sjá upplýsingar um hlutfall mínútna hjá uppöldum leikmönnum og meðaldur liðanna út frá leikjum þeirra í deildinni (sjá myndir neðst).
Það er Sævar Már Þórisson sem heldur úti síðunni. Leikmaður er uppalinn ef hann spilaði a.m.k. einn leik fyrir sama félag í 3.-5. flokki.
Það er Sævar Már Þórisson sem heldur úti síðunni. Leikmaður er uppalinn ef hann spilaði a.m.k. einn leik fyrir sama félag í 3.-5. flokki.
Besta deild karla
Í Bestu deild karla er Þór það lið sem flestar mínútur fara til uppaldra leikmanna, eða 75% allra mínútna. Í síðasta leik Þórs voru 10/11 leikmenn í byrjunarliði liðsins uppaldir hjá Þór. Breiðablik kemur svo í öðru sæti, þar hafa 55% af mínútunum farið til uppaldra leikmanna.
Valur er með fæstar mínútur til uppaldra leikmanna, en einungis 1% af mínútunum hefur farið til uppaldra leikmanna. Meðalaldur byrjunarliðs í deildinni er 25,6 ár eftir 56 spilaða leiki.
FH er með yngsta meðalaldurinn í deildinni. Byrjunarliðið hefur að meðaltali verið 23,4 ára gamalt. Þór, ÍBV, ÍA og KR koma þar á eftir með um tveimur árum eldri byrjunarlið að meðaltali. Stjarnan er með elsta byrjunarliðið í deildinni, Víkingur, Breiðablik og Valur eru með aðeins yngri lið.
Alls hafa 29% mínútna í Bestu deild karla farið til uppaldra leikmanna og hafa 3,2 uppaldir leikmenn að meðaltali verið í byrjunarlið hvers liðs.
Besta deild kvenna
Í Bestu deild kvenna er Breiðablik duglegast að spila á uppöldum leikmönnum, en 58% mínútna liðsins hafa farið til uppaldra Blika. Fram er þar neðst, en engin mínúta hefur farið til uppalins leikmanns.
Valur er með yngsta liðið í Bestu deild kvenna, meðalaldur upp á 21,1 ár. Öll liðin í Bestu deild kvenna eru með lægri meðalaldur en næstyngsta liðið í Bestu deild karla. Meðalaldur byrjunarliðs í deildinni er 22,5 ár eftir 35 leiki.
Í kvennadeildinni hefur 32% mínútna farið til uppaldra leikmanna og eru að meðaltali 3,4 uppaldir leikmenn í hverju byrjunarliði.
Hægt er að lesa sér betur til um tölurnar á síðunni hans Sævars.
Smelltu hér til að skoða síðuna
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 10 | 9 | 1 | 0 | 34 - 6 | +28 | 28 |
| 2. KR | 10 | 8 | 1 | 1 | 38 - 23 | +15 | 25 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 10 | 5 | 0 | 5 | 19 - 22 | -3 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 9 | 3 | 2 | 4 | 12 - 18 | -6 | 11 |
| 8. KA | 9 | 3 | 1 | 5 | 12 - 15 | -3 | 10 |
| 9. Stjarnan | 10 | 3 | 1 | 6 | 18 - 22 | -4 | 10 |
| 10. Þór | 9 | 2 | 0 | 7 | 7 - 23 | -16 | 6 |
| 11. ÍBV | 9 | 1 | 2 | 6 | 14 - 23 | -9 | 5 |
| 12. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Breiðablik | 7 | 6 | 0 | 1 | 21 - 8 | +13 | 18 |
| 2. FH | 7 | 5 | 1 | 1 | 18 - 9 | +9 | 16 |
| 3. ÍBV | 7 | 4 | 1 | 2 | 13 - 13 | 0 | 13 |
| 4. Þróttur R. | 7 | 4 | 0 | 3 | 11 - 7 | +4 | 12 |
| 5. Stjarnan | 7 | 3 | 2 | 2 | 10 - 7 | +3 | 11 |
| 6. Víkingur R. | 7 | 3 | 0 | 4 | 14 - 17 | -3 | 9 |
| 7. Grindavík/Njarðvík | 7 | 2 | 2 | 3 | 8 - 13 | -5 | 8 |
| 8. Valur | 7 | 2 | 1 | 4 | 7 - 10 | -3 | 7 |
| 9. Fram | 7 | 1 | 1 | 5 | 8 - 18 | -10 | 4 |
| 10. Þór/KA | 7 | 0 | 2 | 5 | 11 - 19 | -8 | 2 |



