Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 02. júní 2026 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Arteta vildi fá víti: Þurfum að taka PSG til fyrirmyndar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mikel Arteta þjálfari Arsenal svaraði spurningum eftir tap gegn Paris Saint-Germain í úrslitaleik Meistaradeildarinnar um helgina.

Hann hrósaði samlanda sínum Luis Enrique og lærlingum hann hjá PSG og tjáði sig einnig um umdeilt atvik í framlengingunni þegar Noni Madueke féll til jarðar innan vítateigs en ekkert var dæmt.

   30.05.2026 18:29
Sjáðu atvikið: Arsenal-menn brjálaðir - Vildu fá vítaspyrnu


„Ég vil óska PSG og Luis Enrique til hamingju með sigurinn, þeir eru besta lið í heimi. Við unnum stóra titilinn á frábæru tímabili fyrir okkur en misstum af stærsta titlinum. Það er mjög sárt að tapa úrslitaleiknum eftir vítaspyrnukeppni, það er sársauki sem enginn getur lagað," sagði Arteta, sem var svo spurður út í atvikið þegar Madueke féll til jarðar.

„Fyrir úrslitaleikinn horfði ég á allar vítaspyrnurnar sem voru dæmdar í Meistaradeildinni á leiktíðinni til að skilja hvað er víti og hvað ekki. Ég er að segja ykkur að þetta atvik með Madueke hefði hæglega getað endað sem vítaspyrna.

„Við vorum búnir að æfa vítakeppnina en töpuðum samt. (Eberechi) Eze klúðrar ekki af vítapunktinum á æfingum en pressan var mikil í dag. Við vorum búnir að ákveða að Gabriel myndi taka síðustu spyrnuna, við vorum búnir að æfa það."


Arteta neitaði þó að dvelja lengi á tapinu og tók að tala um bjarta framtíð Arsenal.

„Við þurfum að taka mjög mikilvægar og stórar ákvarðanir til að komast á næsta gæðastig. Við þurfum að sýna óbilandi metnað til að standast þær gríðarlegu kröfur sem eru gerðar til okkar í erfiðustu keppnum heims. Við þurfum að vera mjög fljótir og mjög gáfaðir.

„PSG sýndi magnaða hluti í þessum úrslitaleik, við þurfum að taka þá til fyrirmyndar og reyna að læra af því hvernig þeir spila fótbolta."


   30.05.2026 20:31
Arteta: Gabriel vildi taka fimmta vítið


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner