Jón Sölvi Símonarson gekk til liðs við ÍA fyrir tæpum tveimur vikum síðan frá Breiðabliki. Skagamenn fengu Jón á undanþágu vegna ristarbrots Árna Marinós Einarssonar.
Jón, sem er fæddur árið 2009, var á láni hjá ÍA síðasta sumar þar sem hann var varamarkvörður og lék þá einnig með 2. flokki Skagamanna.
Markvörðurinn efnilegi mætti á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og ræddi um fyrstu vikurnar uppi á Skaga.
Jón, sem er fæddur árið 2009, var á láni hjá ÍA síðasta sumar þar sem hann var varamarkvörður og lék þá einnig með 2. flokki Skagamanna.
Markvörðurinn efnilegi mætti á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og ræddi um fyrstu vikurnar uppi á Skaga.
Jón segir skiptin hafa gengið hratt fyrir sig. „Ég vissi af þessu klukkan tvö degi fyrir leikinn gegn ÍBV. Síðan var þetta undir mér komið að samþykkja þetta og mæta upp á Skaga að skrifa undir.“
Var þetta erfið ákvörðun?
„Maður hugsaði sig alveg um. En það er erfitt að neita liði sem vill fá þig og þú færð að spila í Bestu deildinni. Það er erfitt að neita því að fara í svona klúbb eins og ÍA.“
Rúmum sólarhring eftir undirskrift byrjaði Jón í markinu gegn ÍBV.
„Maður þurfti aðeins að klípa sig. En fótbolti er fótbolti sama hvar þú spilar. Hvort sem þú ert í 2. flokki eða meistaraflokki að þá er þetta bara fótboltaleikur. Eftir á litið var mjög gaman að spila fyrsta leikinn í Bestu deildinni.“
Voru með plan
ÍA reyndi að kaupa Jón Sölva frá Breiðabliki í vetur en tilboðum Skagamanna var hafnað. Jón var spurður hvort að það hefði verið svekkjandi.
„Já og nei. Breiðablik er frábær klúbbur. Ég æfði þar með meistaraflokki í allan vetur og geggjað að vera í Blikum. Það var ekkert rosalegt svekkelsi en mann langaði alveg upp á Skaga í vetur, þeir voru með plan fyrir mig.“
Ætlar að berjast við Árna
Hvernig líst þér á samkeppnina við Árna Marinó?
„Árni er meiddur núna, hann er auðvitað frábær markvörður. Það er gott samband okkar á milli. Þegar hann kemur til baka sjáum við til. Hann er reynslumikill en ég ætla að berjast við hann um markvarðarstöðuna, ég held að það sé þannig í öllum liðum - tveir markmenn sem vilja spila. Síðan er bara þjálfarinn sem velur liðið og við bökkum hvern annan upp,“ sagði Jón að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

























