Ítalska félagið AS Roma hefur mikinn áhuga á enska kantmanninum Mason Greenwood sem er samningsbundinn Marseille næstu þrjú árin.
Greenwood er afar umdeildur einstaklingur en hann þótti gríðarlega efnilegur komandi upp úr unglingastarfinu hjá Manchester United. Hann beið alvarlega álitshnekki á Englandi eftir stóran skandal þegar upp komst um heimilisofbeldi af hans hálfu en kærasta hans dró kæruna til baka eftir að þau hófu sambandið aftur að nýju.
Greenwood, sem er 24 ára gamall, var orðinn byrjunarliðsmaður í liði Man Utd og hafði spilað sinn fyrsta A-landsleik fyrir England þegar málið kom upp snemma árs 2022.
Gian Piero Gasperini þjálfari Roma hefur miklar mætur á Greenwood sem skoraði 26 mörk og gaf 11 stoðsendingar í 45 leikjum með Marseille á nýliðinni leiktíð. Vandamálið er verðmiðinn, þar sem Marseille vill fá 60 milljónir evra fyrir.
Óljóst er hvort Roma sé tilbúið að greiða svo háa upphæð, en tyrkneska stórveldið Fenerbahce er einnig áhugasamt og er talið geta leyft sér að festa kaup á kantmanninum.
29.05.2026 07:30
Greenwood spenntur fyrir Roma





