Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Líkur á að Kjartan Kári fari aftur út - „Galið að horfa á þennan gaur sparka í boltann"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Kári Halldórsson er samkvæmt heimildum nafn á blaði hjá félögum í Noregi og Svíþjóð. Kjartan Kári var keyptur til norska félagsins Haugesund eftir tímabilið 2022 með Gróttu þar sem hann var valinn efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar þökk sé mjög góðri spilamennsku það sumarið.

Hlutirnir gengu ekki alveg upp úti í Noregi og lék Kjartan Kári á láni með FH sumarið 2023 áður en Fimleikafélagið fékk hann svo alfarið frá norska félaginu.

Hann er 22 ára vinstri kantmaður sem skoraði sex mörk og lagði upp tíu í Bestu deildinni.

Slúðrað hefur verið um að Stabæk í norsku 1. deildinni hafi áhuga á því að fá Kjartan í sínar raðir. Fyrir síðasta tímabil vildu Valur og Víkingur fá Kjartan í sínar raðir en hann endursamdi í Kaplakrika. Þá var einnig áhugi á honum frá félagi í Búlgaríu. Stabæk er mikið Íslendingafélag, samkvæmt Transfermarkt hafa átta Íslendingar spilað fyrir félagið.

Fyrrum atvinnumaðurinn Björn Daníel Sverrisson jós Kjartan Kára lofi í viðtali í Draumaliðinu fyrir áramót.

„Ég ætla fullyrða það að ef ég hefði spilað tíu ár með Kjartani Kára þá myndi ég eiga 100 mörk í efstu deild. Hann finnur hálfan metra úti á vængnum, kemur boltanum inn á teig og ég skalla. Það er galið að horfa á þennan gaur sparka í boltann. Hann setur boltann á vinstri, kemur með hann fyrir, inn á miðjan teiginn og ekkert vesen. Ég er fastur á því að því að hann verði ekki leikmaður á Íslandi á næsta ári og ég ætla vona það. Það er svo þægilegt að spila með svona gaur þar sem þú veist bara (að boltinn kemur). Ég skoraði átta mörk í sumar og ég held að hann hafi lagt upp sex af þeim," sagði Björn Daníel.
Athugasemdir
banner
banner