Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mán 25. maí 2026 18:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Notts County upp í C-deild í fyrsta sinn í ellefu ár
Mynd: Notts County
Notts County 3-0 Salford
1-0 A. Jatta ('32 )
2-0 L. Ness ('45 )
3-0 J. Jones ('70 )

Notts County er komið upp í ensku C-deildina eftir sigur á Salford í úrslitaleik á Wembley í dag. Salford er í eigu Man Utd goðsagna en menn á borð við David Beckham, Gary Neville og Paul Scholes voru mættir til að fylgjast með sínum mönnum.

Þetta var hins vegar ekki þeirra dagur. Notts County var með góð tök á leiknum í fyrri hálfleik og komst yfir eftir hálftíma leik þegar Alassana Jatta skoraði.

Lucas Ness bætti síðan öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiksins.

Fabio Borini, fyrrum leikmaður Liverpool, Milan og Roma kom inn á sem varamaður hjá Salford eftir klukkutíma leik en honum tókst ekki að setja mark sitt á leikinn.

Jodi Jones innsiglaði sigur Notts County á 70. mínútu. Notts County komst upp úr utandeildinni fyrir þremur árum og spilar í C deildinni á næstu leiktíð í fyrsta sinn í 11 ár.


Slapp
banner
banner
banner