Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mán 25. maí 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu Sigga Hall skora í lokaumferðinni - Dómarinn fór í skjáinn
Mynd: AD Merida
Sigurður Bjartur Hallsson var á skotskónum um helgina þegar lið hans, AD Merida, sigraði varalið Osasuna í 38. umferð riðils 1 í spænsku C-deildinni. 38. umferðin var lokaumferð deildarinnar.

Sigurður skoraði bæði mörk gestanna sem unnu 1-2 sigur. Fyrra markið kom á 16. mín og það seinna á 49. mínútu. Merida endar í 10. sæti riðilsins, sex stigum frá umspilssæti.

Sigurður var fenginn til félagsins í vetrarglugganum eftir að hafa verið næstmarkahæsti leikmaður Bestu deildarinnar í fyrra og voru þetta þriðja og fjórða markið hans á Spáni.

Fyrra markið varð til úr laglegu skoti fyrir utan teig og í því seinna lúrði hann á fjærstönginni og kom boltanum í netið. Hann var fyrst flaggaður rangstæður en eftir skoðun fékk markið að standa.


Slapp
banner