Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
„Hræðist það ekki að FH geti ekki skorað mörk“
Björn Daníel Sverrisson er farinn en Kjartan Kári Halldórsson er enn til staðar.
Björn Daníel Sverrisson er farinn en Kjartan Kári Halldórsson er enn til staðar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net
FH hefur leik í Bestu deildinni á sunnudaginn þegar liðið heimsækir ÍBV. Talsverðar breytingar hafa orðið á Hafnarfjarðarliðinu og tveir af þeirra helstu sóknarvopnum hafa horfið á braut.

Sigurður Bjartur Hallsson tók silfurskóinn í Bestu deildinni en er farinn til Spánar og þá lagði Björn Daníel Sverrisson skóna á hilluna. Þeir tveir skoruðu samtals 24 af 49 mörkum FH á síðasta ári.

„Það er leiðinlegt að missa þessa menn, þetta eru frábærir leikmenn sem skoruðu mikið af mörkum. Það þarf alltaf að finna leiðir til að skora mörk í fótbolta og þeir skilja eftir sig skörð," segir Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH.

„Það er samt ekkert sem við erum að hafa áhyggjur af núna. Við erum að vinna í því sem við höfum fyrir framan okkur. Við skoruðum fjögur mörk (gegn Þór) í bikarnum og hefðum getað skorað fleiri. Ég hræðist það ekki að FH liðið í sumar geti ekki skorað mörk en það verður ekkert auðvelt því það er fullt af góðum liðum í þessari deild."

Adolf Daði Birgisson sem kom frá Stjörnunni skoraði tvö mörk fyrir FH en Hafnarfjarðarliðið hefur misst lykilmenn úr sóknarleiknum frá síðasta tímabili.

FH fékk einnig Sverri Pál Hjaltested frá ÍBV og þá er þeirra besti leikmaður, Kjartan Kári Halldórsson, enn á sínum stað en hann varð stoðsendingahæstur á síðasta tímabili.

Fyrsta umferð Bestu deildarinnar:

föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Slapp
banner
banner
banner