Fotbolti.net
10.05.26 - 17:16
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeild kvenna: Grótta þurfti þrennu frá Nicole - KR vann

Lengjudeild kvenna: Grótta þurfti þrennu frá Nicole - KR vann
Canon

Mynd: Grótta

Hertz
Það fóru tveir leikir fram í Lengjudeild kvenna í dag þar sem Grótta og KR nældu sér í þrjú stig.
Á Seltjarnarnesi skiptust Cally Queen Togiai og Nicole Douglas á því að skora í fimm marka leik. Lokatölur urðu 3-2 fyrir Gróttu.

Cally kom HK yfir snemma leiks en Nicole jafnaði og náði svo forystunni fyrir leikhlé. Cally jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks en stundarfjórðungi síðar var liðsfélagi hennar Emma Sól Aradóttir rekin af velli eftir að hafa fengið tvö gul spjöld með stuttu millibili.

Heimakonur voru þá leikmanni fleiri og nýtti Nicole það til að fullkomna þrennuna sína og gera um leið sigurmarkið. Lokatölur 3-2.

Grótta og HK eru bæði með þrjú stig eftir tvær fyrstu umferðir deildartímabilsins.

KR er með sex stig eftir sigur á Húsavík þar sem Rakel Grétarsdóttir setti eina mark leiksins í upphafi síðari hálfleiks.

Völsungur situr eftir án stiga.

Grótta 3 - 2 HK
0-1 Cally Queen Togiai ('6 )
1-1 Nicole Douglas ('25 )
2-1 Nicole Douglas ('45 )
2-2 Cally Queen Togiai ('52 )
3-2 Nicole Douglas ('75 )
Rautt spjald: Emma Sól Aradóttir, HK ('67)

Völsungur 0 - 1 KR
0-1 Rakel Grétarsdóttir ('48 )
Lengjudeild kvenna: Grótta þurfti þrennu frá Nicole - KR vann
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.