Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 20:16
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Tindastóll eina liðið með fullt hús
Mynd: Tindastóll
Mynd: Höttur/Huginn
Tveir leikir voru spilaðir í 3. deildinni í dag þar sem Tindastóll og Höttur nældu sér í þrjú stig.

Tindastóll er eina liðið í deildinni með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Sauðkrækingar heimsóttu KÁ og skópu flottan sigur á útivelli. Marc Barragán Escriva var atkvæðamestur með tvennu og komst Tiago Castanheira Assis einnig á blað í liði gestanna.

KÁ er án stiga eftir tapið.

Höttur tók þá á móti Reyni frá Sandgerði og lentu heimamenn undir í fyrri hálfleik en það kom ekki að sök. Kristófer Páll Viðarsson var fljótur að svara með jöfnunarmarki áður en Eyþór Magnússon náði forystunni fyrir heimamenn í Fellabæ.

Fyrstu þrjú mörk leiksins voru skoruð á fjögurra mínútna kafla og var staðan 2-1 í leikhlé. Höttur skipti um gír í seinni hálfleik og skóp að lokum 4-1 sigur þar sem Kristófer Páll var atkvæðamestur með tvennu.

Höttur er með fjögur stig eftir fyrstu umferðirnar, einu stigi meira heldur en Reynir.

KÁ 1 - 3 Tindastóll
0-1 Tiago Castanheira Assis ('3 )
0-2 Marc Barragán Escriva ('57 )
1-2 Carlos Magnús Rabelo ('79 )
1-3 Marc Barragán Escriva ('86 )

Höttur 4 - 1 Reynir S.
0-1 Óðinn Jóhannsson ('23 )
1-1 Kristófer Páll Viðarsson ('24 )
2-1 Eyþór Magnússon ('26 )
3-1 Kristófer Máni Sigurðsson ('57 )
4-1 Kristófer Páll Viðarsson ('71 )
Slapp
banner
banner
banner