![Icelandair](/images/icelandair2_150x150px.png)
Ísland mætir Serbíu á Kópavogsvelli klukkan 14:30 á morgun. Er þetta síðari leikur liðanna í tveggja leikja einvígi í umspili Þjóðadeildarinnar. Ef Ísland vinnur leikinn á morgun þá heldur liðið sér í A-deild sem eykur líkurnar á því að liðið fari á Evrópumótið 2025.
En hvernig verður liðið eiginlega á morgun? Við sjáum ekki fyrir okkur að Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, breyti miklu á milli leikja.
En hvernig verður liðið eiginlega á morgun? Við sjáum ekki fyrir okkur að Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, breyti miklu á milli leikja.
![](https://www.fotbolti.net/images/news/661000/661525/500w.png)
Við spáum því að ein breyting verði gerð á liðinu, að Hafrún Rakel Halldórsdóttir komi inn fyrir Diljá Ýr Zomers. Sveindís Jane Jónsdóttir færi sig þá yfir á vinstri kantinn en það er spurning hvort það komi meira úr henni þar.
Eins og áður segir, þá er leikurinn 14:30 á morgun. Leiktíminn er skrítinn en vonandi geta sem flestir mætt á leikinn.https://stjornbord.fotbolti.net/stjornbord/news.php
Athugasemdir