Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
   mán 30. mars 2026 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hissa á því að Trent er ekki í hópnum - „Þetta er persónulegt"
Mynd: EPA
Það kom mörgum á óvart að Thomas Tuchel hafi ekki valið Trent Alexander-Arnold í enska landsliðshópinn í yfirstandandi landsliðsverkefni.

Tuchel ákvað að velja Reece James, Tino Livramento, Jarell Quansah og Ben White en skildi Alexander-Arnold eftir heima.

Gary Lineker, fyrrum landsliðsmaður Englands, segir að það sé greinilega eitthvað á milli Tuchel og Alexander-Arnold.

„Þetta er persónulegt því ég sé ekki hvernig hann getur ekki verið í hópnum því hann bætir möguleikana þína, jafnvel af bekknum," sagði Lineker.

„Ég hugsa að það sé eitthvað sem Tuchel fílar ekki við Trent, hvort það sé hugarfarið eða að hann sé ekki frábær varnarlega. Það er eitthvað því þetta bara passar ekki."

„Það eru leikmenn í hans stöðu sem, með fullri virðingu, eru ekki í sama gæðaflokki og hann, sérstaklega á boltanum," sagði Lineker að lokum.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner