Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fim 11. júní 2026 09:19
Auglýsingar
Vítaspyrnukeppni Fótbolti.net 17. júní - Allir geta tekið þátt
Keppnin árið 2015 var prýdd stjörnum framtíðarinnar
Keppnin árið 2015 var prýdd stjörnum framtíðarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá vítaspyrnukeppninni 2014 sem haldin var fyrir framan Háskóla Íslands 17. júní
Frá vítaspyrnukeppninni 2014 sem haldin var fyrir framan Háskóla Íslands 17. júní
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Þann 17. júní ætlar Fótbolti.net að endurvekja gamla hefð og finna bestu vítaskyttu landsins. 

Keppnin hefst á slaginu 11:00 á Þróttaravelli í Laugardal - keppendur eru hvattir til að mæta korteri fyrir.

Stefnt er að því ljúka keppni um 13:00 leytið en keppt verður á þrjú mörk í einu bæði hjá fullorðnum og þeim yngri.

Skráning fer fram á staðnum og er bæði hægt að greiða með korti og reiðufé.


Þátttökugjaldið eru 1500 krónur og ekki er hægt að kaupa sig inn eftir klúðrað vítí á ný. 

Mótið verður tvískipt en 5. flokkur og yngri (fæddir 2014 og yngri) keppa á minni mörk með markverði úr yngri flokka starfi Þróttara milli stangana. 

Allir fæddir 2013 og eldri þurfa að skora hjá markvörðum úr efstu deildum landsins. 

Fyrstu verðlaun í fullorðins keppni eru alvöru ferðapakki fyrir sumarið sem inniheldur meðal annars afnot af Teslu Model Y og hjólhýsi frá Leiguhýsi.is í viku í sumar. 

Fyrstu verðlaun í yngri keppni er 55" QLED sjónvarp frá Tölvutek -  Happatreyja fylgir öllum sjónvörpum í Tölvutek meðan HM stendur svo vinningshafi mun einnig fá kóða fyrir happatreyju. Tveir vinningar í einum pakka.

Allur ágóði af keppninni rennur til Ingvars Jónssonar markvarðar Víkinga og fjölskyldu.


Slapp