Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 07. apríl 2019 15:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi aldrei átt fleiri skot - Jafnmörg og Arsenal
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson átti fínan leik hjá Everton þegar liðið lagði Arsenal að velli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Gylfi fékk nokkur færi til að skora í leiknum en inn fór boltinn ekki hjá Íslendingnum.

Í textalýsingu BBC frá leiknum segir að Gylfi hafi átt sjö skot í leiknum. Hann hafi aldrei átt fleiri skot í einum leik í ensku úrvalsdeildinni.

Squawka greinir jafnframt frá því að Gylfi hafi átt jafnmörg skot og allt Arsenal liðið til samans. Gylfi skapaði líka fjögur færi, meira en nokkur annar á vellinum.

Þetta var þriðji sigur Everton í röð og er liðið núna í níunda sæti, einu stigi frá sjöunda sætinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner