Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 13. júní 2019 11:30
Elvar Geir Magnússon
Stramaccioni tekinn við liði í Íran
Andrea Stramaccioni.
Andrea Stramaccioni.
Mynd: Getty Images
Andrea Stramaccioni var fyrir nokkrum árum talinn einn mest spennandi ungi þjálfarinn á Ítalíu. Hann gerði frábæra hluti með yngri lið Inter og var í kjölfarið ráðinn stjóri aðalliðsins.

Hann entist aðeins fjórtán mánuði sem aðalþjálfari Inter og fór síðan að starfa hjá Udinese, Panathinaikos og Sparta Prag með litlum árangri.

Hann hefur nú samið við FC Esteghal í Íran og gert tveggja ára samning.

Esteghal er með tvo Asíumeistaratitla í sögunni og þá hefur liðið átta sinnum orðið íranskur meistari.

Stramaccioni er 43 ára og segist mjög ánægður með samninginn í Íran.
Athugasemdir
banner
banner