Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   fös 10. apríl 2026 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stefán Árni spáir í 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
Mynd: Úr einkasafni
Lærisveinar Arne Slot í Liverpool mæta Fulham.
Lærisveinar Arne Slot í Liverpool mæta Fulham.
Mynd: EPA
Man Utd mætir Leeds á mánudagskvöld.
Man Utd mætir Leeds á mánudagskvöld.
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildin snýr aftur um helgina eftir frekar langt frí. Núna er komið að lokasprettinum.

Íþróttafréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson spáir í leikina að þessu sinni. Stefán Árni stýrir körfuboltaumfjölluninni á Sýn Sport en úrslitakeppnin er í fullum gangi þessa stundina. Það eru tveir leikir í kvöld og tveir leikir annað kvöld.

West Ham 1 - 1 Wolves (19:00 í kvöld)
Úlfarnir ekki alveg tilbunir að gefast upp. En West Ham einnig að berjast fyrir lífinu og likurnar töluvert meiri hjá þeim. Þetta verður close leikur og endar með 1-1 jafntefli.

Arsenal 1 - 1 Bournemouth (11:30 á morgun)
Nallarar hafa ekki verið nægilega sannfærandi að undanförnu. Það er eitthvað að. Bournemoth að safna jafnteflum og þeir ná i sjötta jafnteflið í röð 1-1.

Brentford 2 - 3 Everton (14:00 á morgun)
Þessi verður geggjaður. Liðin með jafnmörg stig. Bæði lið með Evrópudrauma. Eftir svalalegan leik mun Everton vinna 3-2 með marki undir lokin.

Burnley 0 - 2 Brighton (14:00 á morgun)
Burnley svo gott sem fallið. Brighton bara mun betra lið. 2-0 útisigur. Smá Welbeck sýning.

Liverpool 1 - 2 Fulham (16:30 á morgun)
Munar bara fimm stigum á þessum liðum. Liverpool að fara í seinni leikinn gegn PSG. Þeir verða aðeins á hælunum. Fulham vinnur 1-2.

Crystal Palace 0 - 0 Newcastle (13:00 á sunnudag)
Tvö miðjumoðslið að mætast. Þetta verður nokkuð þurr leikur. Markalaust jafntefli.

Nottingham Forest 1 - 3 Aston Villa (13:00 á sunnudag)
Villa menn mega ekki við því að misstiga sig. Champa league baráttan að harðna. Ef þeir ætla sér þangað þá verða þeir að vinna sem þeir gera 3-1.

Sunderland 0 - 2 Tottenham (13:00 á sunnudag)
Ég bara neita að trúa því að Spurs falli. Það væri synd. Völlurinn of flottur. Væri asnalegt að sjá leik í Championsship þar. Svo ég held að þeir nái að safna nokkrum stigum á næstunni. Nýr stjóri og allt það. Þeir vinna 2-0.

Chelsea 0 - 4 Man City (15:30 á sunnudag)
Haaland er kominn í gang. Og Chelsea er einmitt ekki komið í gang. Þetta verður ljótt. 4-0 City.

Man Utd 2 - 1 Leeds (19:00 á mánudag)
United fengið 24 daga til að drilla fyrir þennan leik. Menn fengið frí og þetta verður sigurleikur hjá þeim. Hann verður samt tæpur. 2-1.

Fyrri spámenn:
Páll Sævar (7 réttir)
Elliði Snær Viðarsson (6 réttir)
Hinrik Harðarson (6 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Óskar Borgþórs (6 réttir)
Sævar Atli (6 réttir)
Ísak Bergmann (6 réttir)
Ívar Örn (5 réttir)
Brynjar Atli (5 réttir)
Sandra Erlingsdóttir (5 réttir)
Björn Bragi (5 réttir)
Hjammi (5 réttir)
Martin Hermanns (5 réttir)
Kristján Óli (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ásgeir Frank (4 réttir)
Viktor Bjarki (4 réttir)
Viktor Gísli (4. réttir)
Nablinn (4 réttir)
Helgi Guðjónsson (4 réttir)
Thelma Karen (4 réttir)
Tumi Þorvars (4 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Jakob Gunnar (3 réttir)
Gunni Birgis (3 réttir)
Bolli Már (3 réttir)
Elín Helena (3 réttir)
Siggi Höskulds (3 réttir)
Sérfræðingurinn (2 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Óðinn Svan (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í deildinni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner