Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 11. júní 2021 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pochettino sagður nálægt því að taka leikmann frá Spurs
Aurier í hvítu
Aurier í hvítu
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum Football Insider er Serge Aurier, hægri bakvörður Tottenham, á leið til PSG.

Þar hittir hann fyrir Mauricio Pochettino, fyrrum stjóra Tottenham. Pochettino keypti Aurier frá PSG árið 2017 og vill fá hann aftur tiil sín, nú til Parísar.

Football Insider sagði frá því að maí að PSG hefði boðið í Aurier og er nú sagt að Aurier sé búinn að semja um kaup og kjör.

Aurier er frá Fílabeinsströndinni og er 28 ára hægri bakvörður. Aurier hefur spilað 110 leiki fyrri Tottenham, skorað átta mörk og lagt upp sautján mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner