Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 20:17
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid gerir páfann að heiðursfélaga
Mynd: Real Madrid
Leó páfi hefur verið gerður að heiðursfélaga spænska stórveldisins Real Madrid, en þetta tilkynnti Florentino Perez, forseti félagsins, í dag.

Páfinn heimsótti Santiago Bernabeu, heimavöll Madrídinga, á þriðjudag.

Stjórn Madrídinga kom saman til fundar í dag þar sem Florentino Pérez var formlega kjörinn forseti félagsins til ársins 2030.

Í leiðinni var páfinn gerður að heiðursfélaga Real Madrid, sem er æðsta viðurkenning sem hægt er að hljóta hjá félaginu.

Með þessu sýnir Real Madrid aðdáun sína og virðingu fyrir heimsþekktri persónu sem er fulltrúi milljarða manna og stuðlar að friði, samstöðu og réttlæti í heiminum.




Slapp
banner
banner
banner