Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fim 11. júní 2026 17:10
Kári Snorrason
Sonur Djibril Cisse skrifar undir hjá Liverpool
Prince Cisse.
Prince Cisse.
Mynd: Liverpool
Prince Cisse, sonur hins hárprúða Djibril Cisse, hefur skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamning hjá Liverpool.

Prince er sautján ára gamall hafsent sem hefur verið á mála hjá félaginu frá unga aldri.

Pabbi hans lék með Liverpool frá 2004 til 2007 og skoraði hann þrettán mörk í 49 deildarleikjum fyrir félagið.

Djibril er kannski þekktastur fyrir skrautlegar hárgreiðslur en fyrrverandi eiginkona hans og móðir Prince, er einmitt velskur hárgreiðslumeistari.
Slapp
banner
banner