Nicolas Tagliafico, vinstri bakvörður Ajax, er á óskalista Chelsea en það er Sky Sports sem greinir frá þessu í dag.
Chelsea er að skoða að fá nýjan vinstri bakvörð og Ben Chilwell hjá Leicester er efstur á óskalistanum. Hins vegar gæti reynst erfitt að fá hann í sumar.
Chelsea er því einnig að skoða Tagliafico sem og Sergio Reguilon hjá Real Madrid.

Hinn 27 ára gamli Tagliafico er argentínskur landsliðsmaður en hann skoraði fimm mörk og lagði upp fimm í 38 leikjum með Ajax á síðasta tímabili.
Athugasemdir