Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   lau 16. maí 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vinsæll tónlistarmaður í samstarf við Stokkseyri
Mynd: SLOJ
UMF Stokkseyri fór í skemmtilegt samstarf við fatamerkið SLOJ sem er búið að framleiða hettupeysur fyrir félagið.

SLOJ hannaði og framleiddi nýjar hettupeysur fyrir leikmenn Stokkseyrar en það sem vekur athygli er að tónlistarmaðurinn Moss Kena tekur þátt í samstarfinu með að sitja fyrir í myndatökunni fyrir hettupeysurnar.

Moss Kena er efnilegur tónlistarmaður frá London sem er þekktastur fyrir lagið 'Fireworks' sem hann gerði ásamt Purple Disco Machine og hefur fengið yfir 200 milljón spilanir, sem er einmitt jafn mikið og íbúafjöldinn á Stokkseyri.

Til gamans má geta að SLOJ merkið var stofnað af Jökli Loga, tónlistarmanni frá Stokkseyri sem er búsettur í Berlín.

Stokkseyri er ekki fyrsta fótboltafélagið til að fara í samstarf við tískuvörumerki og fetar þannig í fótspor AC Milan, Barcelona og Arsenal meðal annars.

Stokkseyri leikur í 5. deild og gerði 3-3 jafntefli við RB í fyrstu umferð nýs deildartímabils.



Slapp
banner
banner