Miðjumaðurinn Ayyoub Bouaddi, leikmaður Lille, hefur ákveðið að spila fyrir marokkóska landsliðið frekar en það franska.
Santi Acouna hjá Foot Mercato greinir frá þessu eftir að Didier Deschamps tilkynnti landsliðshóp Frakka sem fer á HM.
Santi Acouna hjá Foot Mercato greinir frá þessu eftir að Didier Deschamps tilkynnti landsliðshóp Frakka sem fer á HM.
Bouaddi er 18 ára gamall og er liðsfélagi Hákonar Arnars Haraldssonar hjá Lille. Hann er fæddur í Frakklandi en er af marokkóskum uppruna. Hann hefur spilað 27 leiki fyrir yngri landslið Frakka. Hann mun að öllum líkindum vera í HM hópi Marokkó.
Hann er uppalinn hjá Lille og hefur spilað 95 leik fyrir liðið. Hann hefur verið orðaður við Liverpool, Man Utd og Chelsea.



