15 ára leikmaður Man Utd bestur í U18 deildinni
Ungir og efnilegir leikmenn enska boltans voru verðlaunaðir fyrir góðan árangur og magnaðar framfarir fyrr í vikunni.
Nico O'Reilly hlaut mikilvægustu verðlaunin en Rio Ngumoha og Max Dowman hlutu einnig viðurkenningar ásamt JJ Gabriel.
O'Reilly er valinn sem besti útskrifaði akademíuleikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni, enda hefur hann átt magnað tímabil með stjörnum prýddu liði Manchester City og fest sig í sessi sem mikilvægur hlekkur í byrjunarliðinu.
O'Reilly er vinstri bakvörður að upplagi en getur einnig spilað á miðjunni og á kantinum.
Ngumoha og Dowman, kantmenn Liverpool og Arsenal, deildu verðlaunum fyrir bestu uppalda nýliða ársins. Vanalega er aðeins einn leikmaður sem hlýtur nafnbótina, en Dowman og Ngumoha eru 16 og 17 ára gamlir.
Ngumoha var einnig titlaður sem efnilegasti akademíuleikmaður ársins.
Að lokum fékk strákur úr röðum Manchester United verðlaun fyrir að vera besti leikmaður U18 úrvalsdeildarinnar, þrátt fyrir að vera aðeins 15 ára gamall.
Sá heitir JJ Gabriel og leikur sem sóknarmaður. Hann kom með beinum hætti að 26 mörkum í 23 deildarleikjum.


