Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fös 15. maí 2026 16:30
Kári Snorrason
Mikael ekki valinn og fær tíma til að ná sér góðum
Mikael Neville Anderson.
Mikael Neville Anderson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mikael Neville Anderson var í hvorugum landsliðshópnum sem mætir Japan og Argentínu í komandi verkefni.

Mikael hefur verið að koma til baka hjá félagsliði sínu Djurgarden og spilað tvo leiki eftir að hafa meiðst í leik með landsliðinu í mars.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður út í Mikael á blaðamannafundi á miðvikudag.

„Hann er búinn að vera mikið meiddur. Þannig að við gáfum honum bara tækifæri á að ná sér góðum. Vonandi sjáum við í haust hvernig gengur,“ sagði Arnar.
Slapp
banner
banner