Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   fös 15. maí 2026 10:10
Elvar Geir Magnússon
United tapaði gegn City í unglingabikarnum - Fletcher reiður yfir framkvæmd leiksins
Unglingalið Manchester City fagnar.
Unglingalið Manchester City fagnar.
Mynd: Manchester City
Mynd: EPA
Unglingalið Manchester United tapaði 2-1 fyrir erkifjendum sínum í Manchester City í bikarúrslitaleik U18 unglingaliða á Englandi.

City skoraði sigurmark á 88. mínútu en United endaði í öðru sæti í öllum keppnum tímabilsins. Reigan Heskey skoraði sigurmark City í gær en hann er sonur Emile Heskey.

Darren Fletcher stýrir U18 liði United og hann var gríðarlega ósáttur við framkvæmd leiksins. Hann var spilaður á varaliðsvelli Manchester City og City sá um umgjörðina.

United hafði boðist til að leikurinn yrði spilaður á Old Trafford en City hafnaði því.

Manchester City gaf út að uppselt væri á leikinn en aðeins United hluti vallarins reyndist fullur, á svæði City voru mörg laus sæti.

Þá var Fletcher ósáttur við að vallarþulurinn hrópaði nöfn City leikmanna en var öllu lágstemdari þegar hann kynnti leikmenn United.

Eins og City væri að halda þessa keppni
„Það eru vonbrigði hvernig enska sambandið hefur höndlað allt í kringum þennan leik, staðsetninguna og allt í kringum hann. Manchester City tók yfir úrslitaleikinn. Þetta er keppni á vegum enska sambandsins og þetta á ekki að vera svona. Það var eins og Manchester City væri að halda þessa keppni," sagði Fletcher.

Fletcher segir þó að betra liðið hafi unnið leikinn. Samkvæmt frétt BBC lét Fletcher fulltrúa enska sambandsins heyra það eftir leik fyrir það hvernig umgjörðin var.

Hér að neðan má sjá það helsta úr leiknum. Floyd Samba og Heskey skoruðu mörk City en Godwill Kukonki gerði mark United.


Slapp
banner