Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
banner
   fös 15. maí 2026 19:52
Ívan Guðjón Baldursson
Stelpurnar á eldi í Skandinavíu
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Heimasíða Álasunds
Mynd: Lyngby
Það var nóg um að vera í kvennaboltanum í dag þar sem Linda Líf Boama og Elísa Lana Sigurjónsdóttir skoruðu mörk Kristianstad í 2-2 jafntefli gegn botnliði sænsku deildarinnar, Rosengård.

Nik Chamberlain er þjálfarinn hjá Kristianstad sem er núna án sigurs þrjá leiki í röð, með 11 stig eftir 6 umferðir.

Alexandra Jóhannsdóttir lék allan leikinn í liði Kristianstad á meðan Linda Líf spilaði fyrstu 84 mínúturnar. Rosengård var 2-1 yfir þegar Elísu Lönu var skipt inn af bekknum og gerði hún dramatískt jöfnunarmark seint í uppbótartíma.

Linda Líf er komin með fimm mörk og tvær stoðsendingar í fimm deildarleikjum.

Í Noregi skoraði Diljá Ýr Zomers eitt á meðan Brenna Lovera setti tvö í risasigri Brann á útivelli gegn Haugesund. Þeim stöllunum var skipt útaf á 63. mínútu, í stöðunni 0-4, til að hvíla þær fyrir komandi átök.

Brann er á toppi norsku deildarinnar með 22 stig eftir 8 umferðir.

Það var nóg um að vera í Noregi þar sem Amanda Jacobsen Andradóttir kom inn af bekknum og lagði upp sigurmark Molde í Íslendingaslag gegn Vålerenga. Marie Jóhannsdóttir fékk einnig að spreyta sig í sigurliði Molde.

Sædís Rún Heiðarsdóttir lék allan leikinn í vinstri bakvarðarstöðu Vålerenga og fékk Arna Eiríksdóttir að spila seinni hálfleikinn.

Vålerenga er með 16 stig eftir þetta tap á heimavelli, 6 stigum meira heldur en Molde.

Daníela Dögg Guðnadóttir kom inn af bekknum í sigri Aalesund sem var að vinna fjórða leik sinn í röð og er búið að jafna Vålerenga á stigum.

Í næstefstu deild í Svíþjóð lék Eyrún Emba Hjartardóttir allan leikinn í tapi B-liðs Häcken á heimavelli gegn Husqvarna. Häcken er án stiga eftir sex umferðir.

Að lokum voru Íslendingar ónotaðir varamenn í Danmörku. Ari Leifsson og Jakob Gunnar Sigurðsson sátu á varamannabekkjunum hjá Kolding og Lyngby.

Liðsfélagar Jakobs, sem er aðeins 18 ára gamall, hjá Lyngby höfðu betur en þeir voru þegar búnir að tryggja sér toppsæti næstefstu deildar. Lyngby leikur aftur í efstu deild eftir sumarfrí.

William Oliver Steindórsson kom inn af bekknum í liði Lyngby.

Nóel Atli Arnórsson kom ekki við sögu í jafnteflisleik AaB og þá var Jason Daði Svanþórsson er enn utan hóps hjá Grimsby.

Rosengard 2 - 2 Kristianstad
0-1 Linda Líf Boama ('35)
1-1 M. Johansson ('49)
2-1 R. Siemsen ('71)
2-2 Elísa Lana Sigurjónsdóttir ('96)

Haugesund 0 - 7 Brann
0-1 Brenna Lovera ('29)
0-2 Diljá Ýr Zomers ('31)
0-3 Brenna Lovera ('38)
0-4 L. Davidson ('54)
0-5 L. Davidson ('81)
0-6 A. Aahjem ('82)
0-7 A. Aahjem ('84)

Valerenga 1 - 2 Molde

Aalesund 2 - 0 Hönefoss

Hacken B 1 - 2 Husqvarna

Kolding 1 - 3 Lyngby

B.93 1 - 1 Aalborg

Slapp
banner
banner