Gylfi Þór Sigurðsson var valinn í landsliðshópinn sem mætir Argentínu í Auburn, Alabama þann 10. júní. Ekki var hægt að velja Gylfa í leikinn gegn Japan 31. maí þar sem sá leikur fer fram fyrir utan opinberan landsleikjaglugga.
Gylfi hefur nú verið valinn í þrjá landsliðshópa í röð. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður á miðvikudag hvort Gylfi væri að festa sig í sessi í landsliðshópnum á ný.
Gylfi hefur nú verið valinn í þrjá landsliðshópa í röð. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður á miðvikudag hvort Gylfi væri að festa sig í sessi í landsliðshópnum á ný.
„Já, hann á það bara skilið. Hann var frábær innan sem utan vallar í Mexíkó, sömuleiðis í Kanada. Hann á skilið að vera í þessum hóp. Ég held að það sé ekkert meira um það að segja. Ég er ótrúlega ánægður með hvernig hann er búinn að taka þessari áskorun.“
„Hann hefði alveg getað verið fúll á móti og sagt mér að hoppa upp í rassgatið á mér þegar ég valdi hann ekki í undankeppninni á síðasta ári. Í staðinn fyrir að gera það þá tvíelfdist hann og fór að haga sér eins og unglingur - vildi gera hvað sem er til að komast aftur í hópinn. Mjög faglegur í alla staði,“ sagði Arnar í viðtali við Fótbolta.net eftir að hópurinn var tilkynntur á miðvikudaginn.

