Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   fös 15. maí 2026 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Erfitt að sjá í rauntíma en KR hefði átt að fá annað víti
Ívar Orri dæmdi leikinn á miðvikudag.
Ívar Orri dæmdi leikinn á miðvikudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR vildi víti í seinni hálfleik en fékk ekki.
KR vildi víti í seinni hálfleik en fékk ekki.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
KR fékk vítaspyrnu gegn Stjörnunni í bikarleik liðanna á miðvikudag undir lok fyrri hálfleiks.

KR hefði svo átt að fá aðra vítaspyrnu í seinni hálfleik, á 82. mínútu, þegar Guðmundur Kristjánsson, varnarmaður Stjörnunnar, sparkaði í Eið Gauta Sæbjörnsson, framherja KR, inn á vítateig Stjörnunnar. Ívar Orri Kristjánsson, dómari leiksins, dæmdi ekkert.

Þetta staðfestir Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ, í samtali við Fótbolta.net.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  1 KR

Guðmundur ætlaði að hreinsa boltann í burtu en í miðri sveiflu komst Eiður Gauti milli Guðmundar og boltans og náði snertingu á boltann. Guðmundur sparkaði í Eið Gauta sem féll við og það hefði átt að vera vítaspyrna.

Ef Eiður Gauti hefði ekki náð snertingu á boltann þá hefði samkvæmt reglunum ekki átt að dæma vítaspyrnu þar sem Guðmundur var byrjaður í sveiflunni og hefði Eiður gerst brotlegur með því að stíga inn í sveifluna. Það er kannski illskiljanlegt, en þannig eru reglurnar.

„Eftir slatta af endursýningum sé ég snertingu frá Eiði á boltann og því er þetta vítaspyrna. En ég skil Ívar mjög vel, það er mjög erfitt að meta þetta í rauntíma," segir Þóroddur.

Hægt er að sjá atvikið eftir 26 mínútur af Bikarkvöldi sem var á dagskrá í gær á RÚV 2.
Slapp
banner
banner