Manchester City mætir Chelsea klukkan 14 á morgun í úrslitaleik FA-bikarsins, Þetta er fjórða árið í röð sem City leikur til úrslita í keppninni.
City hefur reyndar tapað úrslitaleiknum síðustu tvö ár en það er ansi mögnuð staðreynd að alls hefur Guardiola farið með City 24 sinnum á Wembley.
City hefur reyndar tapað úrslitaleiknum síðustu tvö ár en það er ansi mögnuð staðreynd að alls hefur Guardiola farið með City 24 sinnum á Wembley.
Guardiola var í góðum gír á fréttamannafundi í dag og sagði það skandal að ekki væri búið að skýra stúku, eða allavega einhverja stofu á vellinum.
„Ég er mjög svekktur út í enskan fótbolta fyrir það, í ljósi þess hversu oft ég hef komið! Kannski þarf ég að fara 24 sinnum í viðbót," sagði Guardiola í gríni.
City vann deildabikarinn fyrr á tímabilinu og Guardiola var spurður að því hvort tímabilið teldist gott ef liðið tekur FA-bikarinn en tapar gegn Arsenal í baráttunni um meistaratitilinn.
„Stundum lyftir maður bikar þó tímabilið hafi í raun verið slæmt. Ég sagði það fyrir nokkrum vikum og stend við það að þetta tímabil hefur verið virkilega gott."
City eltir Arsenal í baráttunni um enska meistaratitilinn. Guardiola var spurður að því hversu mikið komandi deildarleikur Bournemouth væri í huga hans þegar hann velur byrjunarliðið gegn Chelsea?
„Nákvæmlega ekkert. Þetta er úrslitaleikurinn í FA-bikarnum."
Varðandi stöðuna á leikmannahópnum er óvissa með spænska miðjumanninn Rodri en Guardiola segir að aðrir séu heilir og klárir í bátana.
Pep Guardiola on visiting Wembley Stadium 24 times as #ManCity manager: “I’m so disappointed in English football that they haven’t made a ‘Pep stand’… at least a lounge or a box! Maybe if I go 24 more times…” ???? pic.twitter.com/fB44zqsK2z
— City Report (@cityreport_) May 15, 2026




