Íslenska landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði fyrir Brann sem tryggði sig inn í 16-liða úrslit norska bikarsins með 12-0 sigri á Loddefjord í dag.
Svava, sem kom til Brann frá Bordeaux fyrir tímabilið, byrjaði á bekknum gegn Loddefjord en kom inná sem varamaður á 62. mínútu leiksins.
Fjórtán mínútum síðar gerði hún tíunda mark liðsins áður en Brann bætti við tveimur fyrir leikslok.
Brann er því komið í 16-liða úrslit norska bikarsins en ekki er ljóst hver mótherjinn verður.
Ingibjörg Sigurðardóttir byrjaði þá í vörn Vålerenga sem kjöldró Fart, 9-0. Hún fór af velli í hálfleik i stöðunni 2-0.
Vålerenga er ríkjandi meistari og hefur unnið bikarinn tvö ár í röð.
Athugasemdir