Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. janúar 2019 14:30
Elvar Geir Magnússon
Zaha orðaður við Dortmund
Zaha er 26 ára.
Zaha er 26 ára.
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund hefur áhuga á að fá Wilfried Zaha, vængmann Crystal Palace.

Þýska blaðið Bild segir að Dortmund sé að undirbúa 44 milljóna punda tilboð í Zaha.

Það eru til peningar hjá félaginu eftir að Christian Pulisic var seldur til Chelsea fyrir 58 milljónir punda.

Lucien Favren, stjóri Dortmund, hefur einnig áhuga á Thorgan Hazard, bróður Eden Hazard.

Zaha er gríðarlega mikilvægur hlekkur í liði Palace en hefur ekki skorað síðan í september.

Steven Parish, stjórnarformaður Palace, sagði fyrr í þessum mánuði að Zaha væri ekki á förum í þessum glugga. Hann útilokaði þó ekki sölu í framtíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner