Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 25. júní 2019 14:30
Arnar Daði Arnarsson
Gummi Kristjáns tekur út leikbann gegn Grindavík
Guðmundur Kristjánsson missir af næsta leik FH.
Guðmundur Kristjánsson missir af næsta leik FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
8-liða úrslitin í Mjólkurbikar karla og kvenna fara fram í vikunni. Strákarnir ríða á vaðið á miðvikudaginn þegar ÍBV tekur á móti Víkingi R. í Eyjum og stelpurnar hefja 8-liða úrslitin á föstudaginn.

Víðir Þorvarðarson tekur út leikbann hjá ÍBV í leiknum gegn Víkingi. Björgvin Stefánsson sóknarmaður KR missir af leiknum gegn Njarðvík vegna leikbanns og þá er Guðmundur Kristjánsson í leikbanni hjá FH þegar liðið mætir Grindavík á fimmtudaginn.

Það er enginn leikmaður í kvennaflokki sem tekur út leikbann í 8-liða úrslitunum.

Mjólkurbikar karla:
Miðvikudagur 26. júní
ÍBV - Víkingur R.

Fimmtudagur 27. júní
FH - Grindavík
KR - Njarðvík
Breiðablik - Fylkir

Mjólkurbikar kvenna:
Föstudagur 28. júní
KR - Tindastóll
ÍA - Fylkir

Laugardagur 29. júní
Selfoss - HK/Víkingur
Þór/KA - Valur
Athugasemdir
banner