Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 18:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikur: Stefan Ljubicic sá um Eyjamenn
Stefan með tvennu.
Stefan með tvennu.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Liam Daði skoraði fyrir ÍBV.
Liam Daði skoraði fyrir ÍBV.
Mynd: ÍBV
ÍBV 1 - 2 Keflavík
0-1 Stefan Alexander Ljubicic
0-2 Stefan Alexander Ljubicic
1-2 Liam Daði Jeffs

ÍBV og Keflavík mættust í æfingaleik í Haukahöllinni í Hafnarfirði í dag. Um var að ræða lokaleik liðanna fyrir átökin á komandi tímabili. Næst á dagskrá eru leikir í 32-liða úrslitum bikarsins.

ÍBV tekur á móti Þrótti næsta laugardag og Keflavík heimsækir annað hvort Elliða eða Grindavík annan mánudag.

Stefan Ljubicic skoraði bæði mörk Keflavíkur í leiknum í dag og komu þau bæði í fyrri hálfleik. ÍBV fékk gott tækifæri til að skora í fyrri hálfleiknum en Bjarki Björn Gunnarsson skaut yfir mark Keflavíkur úr víti.

Í seinni hálfleiknum minnkaði svo Liam Daði Jeffs muninn fyrir Eyjamenn sem sigldu í land í morgun.

Byrjunarlið ÍBV: Ari Petersen; Arnór Ingi - Eiður Atli - Sigurður Arnar - Felix; Milan Tomic - Alex Freyr - Róbert Elís - Bjarki Björn; Sesar Örn og Filip Stuparevic.

Byrjunarlið Keflavíkur: Ásgeir Orri; Ásgeir Páll - Marin - Davíð - Kralj; Sindri Snær - Breki Baxter; Eiður Orri - Dagur Ingi - Muhamed Alghoul; Stefan.


Slapp
Athugasemdir
banner
banner