Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. nóvember 2020 12:30
Ívan Guðjón Baldursson
Thiago og Chamberlain missa af Ajax og Wolves
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp segist ekki búast við því að geta notað Thiago Alcantara eða Alex Oxlade-Chamberlain í næstu leikjum Liverpool.

Thiago og Chamberlain eru báðir að glíma við meiðsli en leikmannahópur Liverpool er ansi þunnur þessa dagana vegna mikilla meiðslavandræða.

Liverpool hefur ekki verið að ganga sérlega vel eftir síðasta landsleikjahlé en James Milner bættist á meiðslalistann í jafntefli gegn Brighton í gær.

Klopp segir að Milner, Thiago og Chamberlain verði frá keppni í að minnsta kosti viku í viðbót og missi því af mikilvægum heimaleikjum gegn Ajax í Meistaradeildinni og Wolves í úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner