Mikið fjölmiðlafár hefur verið kringum framtíð Antoine Griezmann, sem er með franska landsliðinu í Rússlandi.
Griezmann hefur verið einn af bestu leikmönnum Frakka og Atletico Madrid undanfarin ár og er gríðarlega eftirsóttur.
Hann hefur tekið ákveðið um framtíðina sína og segist ætla að greina frá henni í kvöld.
Óljóst er hvort Griezmann fari til Barcelona eða verði áfram hjá Atletico, en önnur félög eru ekki talin koma til greina.
"Estaréis hartitos por los comentarios que dicen si me voy, si me quedo, cuánto me dan... Pero la verdad es la que voy a decir ahora". #LaDecisión de @antogriezmann, hoy a las 21.15h SÓLO en @cero. pic.twitter.com/lZOb47itC6
— Movistar+ (@MovistarPlus) June 14, 2018
Athugasemdir