Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. ágúst 2018 20:00
Gunnar Logi Gylfason
Inter að krækja í Keita
Keita í landsleik með Senegal
Keita í landsleik með Senegal
Mynd: Getty Images
Senegalinn Keita Balde Diao, leikmaður Monaco, er sagður vera á leið til Ítalíu.

Keita er ekki í leikmannahóp Monaco fyrir leik liðsins gegn Nantes í fyrsta leiknum í frönsku úrvalsdeildinni.

Á heimasíðu félagsins er gefin ástæða fyrir fjarveru nokkurra leikmanna en ekkert er sagt um fjarveru Senegalans og er hann sagður hafa eytt eftirmiðdeginu með umboðsmanni sínum, Roberto Calenda.

Sky Sport Italia segir félögin vera nálægt því að komast að samkomulagi en talað er um lán sem Inter borgar sex milljónir evra fyrir. Auk þess getur ítalska félagið keypt leikmanninn fyrir 30 milljónir næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner