Eins og við greindum frá í gærkvöldi gekkst Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City undir aðgerð á hné í gærkvöldi sem heldur honum frá knattspyrnu út árið, hið minnsta.
Mendy er ekki þekktur fyrir það að taka lífinu of alvarlega en hann hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum en hann þar verið duglegur að gera grín af sjálfum sér, sem og öðrum.
Mendy spilaði örfáa leiki á síðustu leiktíð þar sem að hann var einnig að glíma við meiðsli á hnéi, þó ekki sama hnéi og er að hrjá hann núna.
Hann hefur byrjað tímalið vel, spilað níu leiki í úrvalsdeildinni og lagt upp fimm mörk. Hann hefur því verið að gefa Fantasy-spilurum mörg stig sem hafa haft hann í liðinu.
Mendy setti færslu á Twitter í gær þar sem hann minnti fólk á að það þyrfti að finna sér nýjan fyrirliða í Fantasy, þó einungis tímabundið.
„Hitt hnéið var afbrýðissamt en aðgerðin gekk vel, ég er góður. Ég kem til baka eins fljótt og mögulegt er, þið þurfið bara að finna nýjan fyrirliða í Fantasy í nokkra leiki."
Other knee was jealous but the operation went well and its all good now 😘 be back soon guys u just have to found another FPL captain for some games 😝✌🏾 https://t.co/RD5ZGGkhMS
— Benjamin Mendy (@benmendy23) November 14, 2018
Athugasemdir