Brasilíska goðsögnin Rivaldo hefur verið ráðinn sem yfirmaður íþróttamála hjá Chabab Mohammedia sem leikur í C-deild í Marokkó.
Rivaldo mun líklega taka við þjálfarastöðu félagsins von bráðar og sinna báðum störfum.
Rivaldo er 46 ára gamall og lék hann síðast fyrir Mogi Mirim í Brasilíu tímabilið 2014-15. Þar lék hann samhliða syni sínum, Rivaldinho, sem verður 24 ára í apríl.
Rivaldo gerði garðinn frægan með Barcelona og brasilíska landsliðinu á sínum tíma. Hann gerði 35 mörk í 74 landsleikjum og skoraði 130 sinnum í 235 leikjum með Barcelona.
Athugasemdir