Getafe 1 - 0 Valencia
1-0 Jorge Molina ('77)
1-0 Jorge Molina ('77)
Það var einn leikur í spænska Konungsbikarnum í kvöld. Þar mættust Getafe og Valencia á heimavelli fyrrnefnda liðsins.
Það var aðeins eitt mark skorað í leiknum en það gerði Jorge Molina fyrir Getafe á 77. mínútu.
Góður 1-0 sigur hjá Getafe staðreynd en þetta var fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum keppninnar.
Seinni leikurinn fer fram á Mestalla, heimavelli Valencia, þann 29. janúar næstkomandi.
Athugasemdir