Heimild: Mbl
Arnór Ingvi Traustason og félagar í Malmö mæta enska stórliðinu Chelsea í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar annað kvöld.
Í viðtali við Guðmund Hilmarsson á Morgunblaðinu kveðst Arnór vera vongóður fyrir leiknum þrátt fyrir að andstæðingurinn sé mjög sterkur.
„Ég tel að við eigum góða möguleika á móti Chelsea og sérstaklega á okkar heimavelli. Það verður troðfullur völlur og það er alltaf gaman spila undir þannig kringumstæðum í Malmö," segir Arnór.
„Við ætlum að gera okkar besta til að stríða Chelsea-liðinu."
Chelsea tapaði 6-0 gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.
„Það vita allir að gæðin eru mikil hjá Chelsea og það má alveg búast við því að leikmenn þeirra vilji svara fyrir sig eftir þann skell. Þeir mæta eflaust tvíefldir til leiks," sagði Arnór.
Það sem mun gera þennan leik enn erfiðari fyrir lið Malmö er að tímabilinu í Svíþjóð lauk í nóvember og hefst það í mars. Malmö undirbjó sig fyrir leikinn gegn Chelsea með því að spila æfingaleiki gegn Krasnodar og Dynamo Kiev á Spáni.
Athugasemdir