Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   lau 30. maí 2026 18:21
Snæbjört Pálsdóttir
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Kvenaboltinn
Óskar Smári Haraldsson var ánægður með fagmannlegan 2-0 sigur Stjörnunnar
Óskar Smári Haraldsson var ánægður með fagmannlegan 2-0 sigur Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með hvernig hans lið leysti verkefnið gegn ÍBV í 2-0 sigri á Samsungvellinum í dag.

„Bara mjög jákvætt, mjög ánægður með stelpurnar í dag. Fannst þær spila vel og leystu þennan leik faglega. Þetta var algjör banani þessi leikur, það vantar mikið af lykilleikmönnum í ÍBV.“


Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  0 ÍBV

Hann hafði sérstaklega orð á markverði ÍBV, Guðnýju Geirsdóttur, sem hélt gestunum inni í leiknum í fyrri hálfleik.

„Guðný var stórkostleg í markinu í fyrri hálfleik og varði hvert skotið af fætur öðru.“

„Settum tvö í seinni hálfleik, náðum okkar takti í leiknum og að mínu mati verðskulduðum þennan sigur.“

Kristín Klara stóð sig vel í að dekka Úlfu Dís Kreye Úlfarsdóttur í leiknum og tókst lengi vel að halda henni út úr leiknum. Óskar segir þó að erfitt sé að halda niðri í leikmanni af hennar gæðum í heilan leik.

„Kristín Klara er náttúrulega bara góður varnarmaður, aggressífur og gerði bara vel í því að elta hana út um allan völl.“

„Jón Óli náttúrulega bara ofboðslega klókur og góður þjálfari og ég vissi alveg fyrir leikinn að hann kæmi með eitthvað óvænt á mig í dag. Ég var alveg búinn að undirbúa mig fyrir það að það væri eitthvað óvænt í spilunum.“

„Við hefðum alveg getað skipt henni fyrr eða sett hana central líka. Fór kannski ekki mikið fyrir henni í fyrri hálfleik en mér fannst hún samt alltaf hættuleg og við vorum að koma bakvörðunum okkar hátt upp á völlinn.“

„Svo í seinni hálfleik þá leggur hún upp tvö mörk, eitt frá vinstri og eitt frá hægri þar sem hún gerir bara gríðarlega vel.“

„Aftur, Kristín Klara gerði ógeðslega vel í að dekka hana en í 90 mínútur plús þá er bara ótrúlega erfitt að eiga við Úlfu Dís, sérstaklega þegar hún kemst á skrið, í gírinn og á ferðina. Hún gerði það tvisvar í dag og við fengum tvö mörk upp úr því.“

Fram undan er landsleikjahlé en Óskar var fljótur að grípa til húmors þegar hann var spurður út í næstu tvær vikur.

„Ætli ég fari ekki bara til Tenerife á morgun og verði þar í tvær vikur svo mætum við bara á æfingu daginn fyrir leik á móti Breiðablik og spilum við þær.“

„Nei, nei við förum bara í smá breik, æfum samt líka og höfum núna tvær vikur til að undirbúa okkur fyrir Breiðablik, því þær eru efstar.“

Stjarnan hefur unnið tvo leiki í röð og Óskar telur liðið fara inn í næsta verkefni með gott sjálfstraust.

„Við getum bara farið með kassann og hökuna út á móti þeim því að tveir sigurleikir í röð. Það er gott, sigrar næra, sigrar gefa, þannig okkur hlakkar bara til.“

„Ég reyndar þoli ekki pásur en fínt að hvíla nokkra skrokka og æfa aðeins og svo mætum við bara klárar gegn Breiðabliki.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp