Fyrri hálfleik framlengingarinnar í leik PSG og Arsenal í úrslitum Meistaradeildarinnar er lokið. Staðan er enn 1-1.
Arsenal vildi fá vítaspyrnu þegar Noni Madueke féll í teignum eftir viðskipti sín við Nuno Mendes. Madueke komst fram fyrir Mendes og sá síðarnefndi féll á þann fyrrnefnda.
Arsenal vildi fá vítaspyrnu þegar Noni Madueke féll í teignum eftir viðskipti sín við Nuno Mendes. Madueke komst fram fyrir Mendes og sá síðarnefndi féll á þann fyrrnefnda.
Dómari leiksins gerði ekkert í þessu og VAR steig ekki inn í við litla hrifningu Arsenalmanna. Declan Rice fékk að líta gula spjaldið fyrir mótmæli og menn á bekknum létu í sér heyra og dómarinn veifaði spjaldinu í átt að bekknum.
„Þetta var 50/50 fyrir mér. Þessu er ekki snúið við sem 'augljós mistök' í VAR sama hvað dómarinn dæmir. Þetta er risastórt augnablik og Arsenal hefur enn ekki fengið vítaspyrnu á tímabilinu," sagði Charlotte Marsh hjá Sky Sports.
Sjáðu atvikið hér



